Afsakið hvað ég blogga seint…það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér að ég bara steingleymdi því:-S
en hún er allavega yfirstaðin og var síðastliðinn mánudag…Við hjónin mættum upp í Art Medica klukkan 9 um morgunin og var ég þá búin að eiga nánast svefnlausa nótt hehe
við komuna þá fékk ég tvær verkjatöflur og eina róandi töflu sem ég setti undir tunguna…hún virkaði samt ekki vel fyrir mig….
Svo ca. 40 mín seinna var ég komin inn til Þórðar sem tók afskaplega vel á móti mér:-) hann deyfði mig vel, extra einsog hann sagði og það gekk vel svo var mér gefið verkjalyf í æð í aðgerðinni sjálfri, þvílík sæla sem það var:-) hehe …honum tókst að ná samtals 9 eggjum og vorum við öll ánægð með það! það dugar fyrir einu pari, þótt ég hafi ætlað mér að gefa tveimur pörum þá get ég voðalega lítið valið um þetta:-) bara vonandi að þetta séu góð egg;-)
Ég viðurkenni það samt að mér fannst eggheimtan frekar óþægileg en það er samt ekki að marka mig því ég hef ávallt verið mjög viðkvæm í kviðnum og hafa venjulegar sónarskoðanir verið mér erfiðar vegna þessa…en þetta gekk og mikið var ég sátt þegar þetta var búið.
Ég fékk að hvíla mig einsog ég vildi eftir aðgerðina og það var ekkert stress með það, minnir að ég hafi legið þarna í einhverja 2 tíma ca.
Ég sofnaði svo þegar ég kom heim og svaf langt framm eftir deginum…
Nú bíð ég spennt eftir að geta hringt í janúar til að fá að heyra hvort þetta hafi gengið hjá parinu:-)
takk fyrir að fylgjast með mér! gaman að fá skilaboðin frá ykkur og ég vona að ég hafi ýtt við einhverjum konum þarna úti til þess að gefa egg:-)
kær kveðja.
Jæja nú fer þessu ferli mínu að ljúka og ég verð að segja það að þetta var mikið auðveldara en ég bjóst við…en ég hefði samt ekki getað þetta nema með stuðningi frá manninum mínum sem hefur sprautað mig á hverjum morgni, ég hef ekki getað gert það sjálf því miður…
Ég fór til Þórðar í gær og hann var svolítið hugsi því hægri eggjastokkurinn minn er með egg sem eru tilbúin í dag(laugardag) en sá vinstri er með örlítið óþroskaðri egg og var hann ekki alveg viss hvort hann ætti að bíða með eggheimtuna framm á miðvikudag en þá er hætta á að eggin hægra megin séu ónýt þegar að eggheimtunni kemur því það er ekki öruggt að eggin vinstra megin nái að þroskast mikið meira, því ákvað hann að eggheimtan verði á mánudag og hækkaði hann lyfjaskammtinn til að gefa þessum óþroskuðu eggjum smá auka búst og vonandi ná þau að þroskast um helgina…annars ættu að nást góð egg hægra megin…ég krossa allavega allar tær og alla putta í von um að þetta fari allt vel og að það náist egg sem verða nothæf!
Ég fór í sónarskoðun líka síðasta mánudag og það var ekki mjög spennandi því ég er svo aum þarna niðri þannig þrýstingurinn var nánast óbærilegur! maðurinn minn varð að halda í hendina á mér allann tímann á meðan skoðunin fór fram. Þórður læknir reyndi einsog hann gat að skoða mig varlega en þetta var ógeðslega vont…veit ekki af hverju þetta var svona vont og hann gat heldur ekki gefið mér skýringar á því heldur sagði hann að konur væru svo misjafnar, sumar eru mikið aumar á ákveðnum tíma tíðarhringsins…þetta minti mig á hríðar!! svo vont var þetta en svo í sónarnum í gær(föstudag) þá fann ég ekki fyrir neinu, Þórður var frekar hissa á þessu hehe en hann sagði að ég yrði deyfð vel og gefin verkjalyf í aðgerðinni þannig ég ætti ekki að finna til…fengi extra mikið ef ég þyrfti á því að halda hehe:-)
Ég sprauta mig eða maðurinn minn réttara sagt hehe með sprautu sem er kölluð miðnætursprautan klukkan 22 í kvöld og það er sprauta sem er gefin á ákveðnum tíma fyrir eggheimtuna…fer svo á mánudagsmorgun í eggheimtuna sjálfa og ég er orðin mjög spennt…maðurinn minn er búinn að taka sér frí þann daginn og ætlar hann að vera með mér í gegnum allt saman…finnst ykkur ég ekki heppin??:-)
Það er ráðlaggt að maður sé ekki einn daginn sem eggheimtan er…
Endilega spyrjið mig ef ykkur langar að vita eitthvað um þetta?
ég mun skrifa ykkur smá línu eftir eggheimtuna samt örugglega ekki fyrr en á þriðjudag og læt ykkur vita hvernig gekk:-)
eigið góða helgi!
Jæja nú er seinni hluti á lyfjameðferðinni að byrja í fyrramálið, ég fór í sónar í morgun hjá Þórði og það kom allt normalt út! allt er að ganga glimrandi vel:-)
Ég á að halda áfram að sprauta mig með Superfact og á að sprauta mig með öðru lyfi líka sem ég man ekki í augnablikinu og ég sprauta því með sykursýkispenna sem er mjög auðvelt líka,…Einsog Þórður sagði í morgun þá byrjar allt núna, því með nýja lyfinu þá byrjar örvunin.
Svo fer ég aftur í sónar næsta mánudag…og svo á föstudaginn þar á eftir því þá er hægt að sjá hvort ég sé tilbúin í eggheimtu mánudaginn eftir eina og hálfa viku!!:-)
er mjög spennt að sjá hvernig þetta mun ganga! miða við hvað ferlið hingað til er búið að ganga vel þá get ég alveg hugsað mér að gera þetta aftur! og ég vona að það séu einhverjir að fylgjast með blogginu og vonandi vekur þetta áhuga hjá fleirum til að gefa egg:-)
en já ég læt í mér heyra eftir sónarinn á mánudag!
kveðjur frá mér!
Question with 1 note
Anonymous asked: Sæl, mikið dáist ég af þessari ákvörðun þinni.. hef mikið hugsað um þetta sjálf og mun sennilega láta verða af þessu þegar ég hef lokið barneignum..
En mig langar að spurja, getur hver sem er gefið egg??
Sæl.
Þakka þér fyrir hlýleg orð:-)
Spurningin þín er svoldið stór, því auðvitað eru ákveðnar reglur um eggjafa…konur þurfa að vera á ákveðnum aldri og þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði en flestar geta gefið ekk:-) endilega lestu upplýsingarnar um egggjafir á heimasíðunni hjá ART medica www.artmedica.is
gangi þér vel:-)
Post with 1 note
jæja mér finnst ég geta aðeins skrifað um ferlið núna!
Ég byrjaði sem sagt á laugardag að sprauta mig eða réttara sagt maðurinn minn byrjaði að sprauta mig á laugardag! Ég er svo heppin að eiga yndislegann eiginmann sem styður mig í þessu ferli og finnst ekkert mál að sprauta mig á morgnanna!:-)
Við tókum smá æfingu á fimmtudaginn og ég ætlaði að prófa að stinga mig, fannst ég þurfa að prófa þar sem ég gat ekki stungið sjálfa mig þegar ég var að læra á lyfin hjá hjúkkunni á Art…ég held að ég hafi setið frosin í um klukkustund og endaði á að viðurkenna að þetta gæti ég ekki! þetta er mér ofviða og ég get hreinlega ekki stundið sjálfa mig, mér finnst þetta samt svo skrítið því það er alls ekki vont og það hefur ekki verið neitt mál þegar maðurinn minn hefur sprautað mig…Ég ætlaði að prófa að stinga mig í morgun en einsog á fimmtudag þá fraus ég og endaði á að biðja hann um að sprauta:-)
Ef ég hefði hann ekki þá veit ég ekki hvar ég væri í þessu ferli mínu! myndi sennilega þurfa að koma við hjá ART á hverjum morgni til að biðja hjúkkurnar um að sprauta mig hehe hún reyndar sagði að það hefur komið fyrir að konu hafa þurft að gera það því þær gátu ekki einsog ég sprautað sjálfa sig! ég skil þær svo vel!!!!:-)
En já í morgun var fjórða sprautan og enn sem komið er þá finn ég ekki fyrir neinum aukaverkunum en mun sennilega finna fyrir einhverjum einkennum og ég reikna nú alveg með því…Ég tek samhliða sprautunum Primolout því ég hef verið með óreglulegar blæðingar og því vildi Þórður að ég tæki þessar töflur svo ég yrði reglulega…ég tek töflurnar í 10 daga og hætti þeim en held áfram að sprauta mig.
Ég hef ekki farið í neina sónarskoðun síðan ég fór í byrjun ( þegar var verið að athuga hvort ég væri efni í egggjafa) en ég fer í sónarskoðun 13.október og eftir það mun ég byrja seinni hluta meðferðinnar og sprauta mig með sykursýkispenna sem er töluvert auðveldara heldur en sprauturnar sem ég sprauta mig með núna…það verður næs…hver veit nema ég nái að sprauta mig sjálf þá! hehe gæti verið að hugurinn sé eitthvað að leika á mig þar sem ég er með actually venjulega sprautu í höndunum núna en verð með sprautupenna eftir 13.október:-) vonandi!
Jæja ætlaði bara að leyfa ykkur að fylgjast aðeins með mér og ég ætla að skrifa ykkur smá línu áður en ég fer í sónarskoðunina…
bless í bili!
p.s. munið að ef ykkur langar að spyrja mig að einhverju! þá endilega sendið mér línu! ég svara eftir bestu getu!
jæja ég fór í morgun og fékk kennslu á lyfin og fékk með mér heim fullan poka af lyfjum og sprautum.
Næstkomandi laugardag mun ég byrja að sprauta mig og ég verð að viðurkenna það að ég finn fyrir svolitlu stressi…enda held ég að það sé mjög normalt, manneskja sem hefur aldrei líkað sprautur og nálar þarf núna í rúmann mánuð að sprauta sig á hverjum degi!
sem betur fer þá á ég góða að sem eru til í að aðstoða mig við þetta…
Ég ákvað að gefa undir nafni, þá getur barnið (ef þetta tekst hjá parinu sem þiggur eggin mín) fengið að vita nafnið mitt þegar það verður 18 ára og einnig er hægt að hafa samband við mig ef það kemur eitthvað fyrir hjá barninu og það þarfnast einhvers frá þeim sem er skyldur barninu…
Eftir fyrsta tímann sem ég fór til Art medica um daginn þá var hringt í par sem er á biðlista eftir eggi og því var tilkynnt að það væri komin egggjafi og ferlið færi allt í gang bráðlega! það fer um mig vellíðunartilfining að hugsa til þess að það er fólk þarna úti sem fékk þetta símtal og það hafa sennilegast verið mjög ánægt með þessar fréttir:-) Þetta hjálpar mér áfram í ferlinu og ýtir undir þessa stóru ákvörðun sem ég tók og núna finn ég fyrir smá pressu um að standa mig en þetta hjálpar mér líka að hugsa um hversu góðann hlut ég er að gera!
jámm ég bíð spennt eftir laugardeginum:-)
kveðjur frá mér, læt í mér heyra þegar ég er byrjuð að sprauta mig og ef ykkur langar að spyrja mig að einhverju þá endilega spyrjið, ég skal svara eftir bestu getu.
Post with 1 note
Jæja þá eru blæðingarnar mættar og þær komu nákvæmlega á þeim tíma sem Þórður var búinn að segja til um komutímann:-) fyrsti dagur blæðingar var síðast sunnudag 5.september…ég hafði samband við hjúkrunarfræðinginn hjá Art og hún lét mig fá tíma í kennslu ( fyrir lyfin) og ég á að mæta 21.september og ég byrja svo á lyfjunum þann 25.september…allt að gerast bara!!
Þannig ég get reiknað með að vera fara í eggjaheimtuna í vikunni 25-29. október!:-D
Er ennþá mjög sátt við þessa ákvörðun…ég meiri segja lenti í því um daginn að sitja við hliðin á manneskju sem ég þekkti ekkert og við byrjuðum að spjalla og það kom á daginn að manneskjan og maki voru búin að reyna í meira en 1 ár og ekkert gekk…næsta skref væri að fá egg gefið þar sem þau gátu ekki haft egglos….ef þetta staðfestir ekki þörfina fyrir eggjum þá veit ég ekki hvað! Ég fékk þvílíkt energy boost við að heyra þetta og fann hvað ég er að gera rétt með þessu og ég finn líka bara í hjarta mér að ég er innilega tilbúin fyrir þetta ferli…
þetta á eftir að ganga vel…það skal ganga vel:-)
ég læt vita af mér þegar ég er búin í kennslunni;-)
bæ í bili…
Post with 1 note
Ég vona að það séu einhverjir að fylgjast með mér og athuga af og til með þetta blogg mitt og væri æði ef þið mynduð kommenta;-)
nú bíð ég eftir að blæðingarnar komi hjá mér, hjúkrunarfræðingurinn hjá Art hringdi í mig og sagðist ætla að fara skipuleggja ferlið mitt og þegar 21 dagur frá fyrsta degi blæðinga þá get ég farið að taka inn lyfin…Einsog ég sagði síðast þá taldi Þórður að það væri um 3 vikur í blæðingarnar og ég spurði hjúkrunarfræðingin hvort það væri eitthvað hægt að gera fyrir mig ef þær koma ekki fljótlega og hún taldi að það væri vel hægt að setja mig á Primolout ( held ég sé að skrifa þetta rétt) til að framkalla blæðingar svo ég geti farið að byrja ferlið….
Ég ætlaði bara að láta ykkur vita hvað væri í gangi hjá mér núna og ég lofa að blogga um leið og eitthvað gerist:-) er orðin mjög spennt fyrir þessu enda veit ég að það er par eða pör þarna úti sem vonandi munu þiggja eggin mín og fá VONANDI bestu gjöf lífs þeirra….
Heyrumst í bili….
Anonymous asked: Ég hef mikið verið að íhuga að gefa egg. Ég hef ekki áhuga á því að eignast börn sjálf en vill þá endilega hjálpa þeim sem vilja það en geta það ekki. Ég las linkinn sem þú settir á bloggfærsluna þína en það er eitt sem ég skil ekki. Kostar 75.000 - 100.000 kr að gefa egg? Eða er ég að misskilja hrottalega?
nei nei þú borgar ekkert fyrir að gefa egg…ef það tekst að fá egg frá þér þá færð þú greitt óþægindargjald fyrir það að ganga í gegnum ferlið og gefa eggin þín og þú færð 75 þúsund fyrir 5 egg og 100.000 fyrir 10 egg.
Endilega hafðu samband við Art medica og fáðu að tala við hjúkrunarfræðing þar:-)
kær kveðja
Page 1 of 2